Háskólinn á Akureyri

Eyktaklukka í Miđborg Klukkan sem prýðir Miðborg er gjöf frá FSHA og Góðvinum HA og var afhent við

Eyktaklukka í Miđborg

Klukkan sem prýðir Miðborg er gjöf frá FSHA og Góðvinum HA og var afhent við hátíðlega athöfn við vígslu nýbyggingarinnar þann 28. ágúst 2010. Klukkuverkið hefur verið uppi um þónokkurn tíma en þann 16. janúar sl. var lögð lokahönd á uppsetningu klukkunnar þegar umgjörðin var kláruð. Klukkan sýnir heiti eykta, gamals tímatals sem horfið hefur að mestu úr daglegu máli.

Samkvæmt fornri reglu var sólahringnum skipt í átta eyktir sem hver um sig eru þrjár klukkustundir. Á Vísindavefnum segir að orðið eykt merki þrjár stundir en sé einnig notað um tímann milli 15:30 og 16:30. Rót orðsins hefur sennilega merkt „dráttardýr" og upphafleg merking orðsins var „tíminn sem dráttardýr er spennt fyrir plóg, vagn".

Miðborg og klukkanEyktirnar eru þessar:
ótta kl. 3
rismál kl. 6
dagmál kl. 9
hádegi kl. 12
nón kl. 15
miðaftann kl. 18
náttmál kl. 21
miðnætti kl. 24

Vísindavefurinn http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4343.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf