Á félagsvísindatorgi miðvikudaginn 18. janúar mun Bjarni Már Magnússon halda erindi undir yfirskriftinni: Samningar um afmörkun landgrunnsins utan 200 sjómílna. Torgið fer fram í stofu M101 á Sólborg og hefst kl. 12.00. Erindið fer fram á ensku.
Á liðnum árum hefur kastljósið í sífellt meira mæli beinst að landgrunninu utan 200 sjómílna m.a. að afmörkun þess milli nágrannríkja. Í erindi sínu á félagsvísindatorgi fjallar Bjarni um hvaða reglur gilda um slíkar afmarkanir og þá samninga sem til staðar eru sem afmarka landgrunnið á milli ríkja.
Bjarni Már Magnússon leggur stund á doktornám við Edinborgarháskóla á sviði þjóðaréttar. Meðfram doktorsnáminu hefur Bjarni komið að dómsmálum fyrir alþjóðlegum dómstólum og komið að gerð ítarlegrar skýrslu um siglingalöggjöf á Norðurskautinu fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.



