Háskólinn á Akureyri

Félagsvísindatorg: Hruniđ, samspil ađstćđna eđa óvandađir menn? Miðvikudaginn 22. febrúar mun Þorvaldur Lúðvík

Félagsvísindatorg: Hruniđ, samspil ađstćđna eđa óvandađir menn?

Þorvaldur Lúðvík SigurjónssonMiðvikudaginn 22. febrúar mun Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson halda erindi á félagsvísindatorgi undir yfirskriftinni: Hrunið: Samspil aðstæðna eða óvandaðir menn? Torgið hefst kl. 12.00 og er haldið í stofu M102 á Sólborg. Allir velkomnir.

Hrunið var spilltum bankamönnum og útrásarvíkingum að kenna er algeng söguskýring nú um stundir.  Eru aðrar skýringar eða er viðtekin skoðun sú rétta?  Í erindi sínu á lögfræðitorgi ræðir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson verða raktir helstu þættir í þróun heimshagkerfisins í aðdraganda hrunsins; samspil einstaklinga, stofnana og ákvarðana ræddar og reynt að kryfja hvað raunverulega gerðist.  Hvað olli hverju og hverjar hafa afleiðingarnar verið?

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hefur nýlega verið ráðinn framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Þorvaldur var áður forstjóri Saga fjárfestingarbanka (SIB) og starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi frá
1996 til 2006. Árið 1995 hlaut Þorvaldur BA Hons gráðu í alþjóðlegum viðskiptum og tungumálum frá Heriot-Watt University, Edinburgh, og FH Reutlingen, Þýskalandi, í alþjóðaviðskiptum og þjóðhagfræði.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Gústaf Línberg Kristjánsson

„Sjávarútvegsfrćđi er ţverfaglegt nám sem gefur möguleika á fjölbreyttu meistaranámi.“

Gústaf Línberg Kristjánsson nemandi í sjávarútvegsfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf