Miðvikudaginn 1. febrúar mun Guðlaug Gísladóttir verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga flytja erindi undir yfirskriftinni: Sjálfbærniverkefnið á Austurlandi. Torgið hefst kl. 12.00 og er haldið í stofu M102 á Sólborg. Allir velkomnir.
Bygging Kárahnjúkavirkjunar og álvers Alcoa Fjarðaáls eru stærsta einstaka framkvæmd Íslandssögunnar. Í erindi sínu á félagsvísindatorgi ræðir Guðlaug Gísladóttir um svonefnt sjálfbærniverkefni sem fyrirtækin sem stóðu að framkvæmdunum ákváðu að setja á laggirnar til þess að fylgjast með áhrifum framkvæmda og starfsemi álvers og virkjunar á umhverfi, efnahag og samfélag á Austurlandi. Verkefnið hófst árið 2004 og er markmið þess að styðja við stefnu fyrirtækjanna um að starfa í anda sjálbærrar þróunar, að þróa vegvísi sem hjálpar þeim að fylgja eftir stefnumiðum um sjálfbærni og að þróa tölulega vísa til að meta árangur. Mikil vinna er tengd vöktun, mælingum og úrvinnslu á niðurstöðum. Upplýsingar um verkefnið og árangur má skoða á heimasíðu verkefnisins: http://www.sjalfbaerni.is/.
Guðlaug Gísladóttir er MPM í verkefnastjórnun frá verkfræðideild HÍ og jafnframt meistaranemi í viðskiptafræði, stefnumótun og stjórnun, við sama háskóla. Starfar sem verkefnastjóri við rannsóknir og þróun hjá Þekkingarneti Þingeyinga frá 2009. Hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Kaupþing Group og Alcoa Fjarðaáli, sem stjórnandi í opinbera geiranum í fjölmörg ár og stundað sjálfstæðan atvinnurekstur.



