Fimmtudaginn 28. janúar flytur Iðunn Antonsdóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur, erindi
sem hún nefnir: „... hendist milli Kópaskers og Kína." Skólastjórnun í austri og vestri.
Fræðslufundurinn hefst kl. 16:30 þann 28. janúar í stofu 16 í Þingvallastræti 23. Gert er ráð fyrir að fundi ljúki kl. 17:30. Allir velkomnir.
Í erindi sínu gerir Iðunn grein fyrir niðurstöðum úr meistaraprófsrannsókn sinni en hún brautskráðist með M.Ed. próf frá Háskólanum á Akureyri vorið 2009. Rannsóknin var unnin með eigindlegum aðferðum og er þar greint frá störfum fimm skólastjórnenda og þeim þáttum sem mynda bakgrunn starfa þeirra. Markmiðið var m.a. að reyna að varpa ljósi á hvort viðfangsefni skólastjórnenda séu hin sömu við ólíkar samfélagsaðstæður, hvernig skólastjórar velja viðfangsefni sín og hvort og þá á hvaða hátt fjölþjóðlegur nemendahópur hafi áhrif á störf skólastjóra. Niðurstöður gefa til kynna að störf skólastjórnenda séu að verulegu leyti þau sömu óháð því í hvaða samfélagi þau eru unnin. Þó kemur greinilega fram hversu mikið vægi skólastjórnendur gefa tengslum samfélags og skóla. Leiðsögukennari var Guðmundur Heiðar Frímannsson, ráðunautur Börkur Hansen og prófdómari Halldór Valdimarsson, skólastjóri, Húsavík. Formaður meistaraprófsnefndar var Anna Þóra Baldursdóttir.



