Fimmtudaginn 11. mars flytur Sigríður Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjaness fyrirlestur sem hún nefnir: Konur, stjórnun og samskipti.
Stjórnunaraðferðir kvenna í ólíkum atvinnugreinum. Fyrirlesturinn hefst kl. 16:30 í stofu 16 í Þingvallastræti 23. Allir
velkomnir.
Í fyrirlestri sínum greinir Sigríður frá niðurstöðum meistaraprófsrannsóknar sinnar. Rannsóknin var eigindleg og beindist að stjórnunaraðferðum og störfum kvenna í þjónustu við fatlaða, iðnaði og framleiðslu, og í fjármálaþjónustu. Markmiðið var að auka skilning á stjórnunaraðferðum kvenna í ólíkum starfsgreinum og á áhrifum kynferðis og starfsvettvangs á stjórnun. Meginniðurstöður eru að starfsvettvangur og kynferði höfðu lítil áhrif og að stjórnunaraðferðir og viðhorf til stjórnunar voru í meginatriðum þær sömu þótt greina mætti blæbrigðamun. Samskipti milli kynjanna var helsti munur á milli starfsgreinanna og gætti togstreitu í samskiptum innan fjármálaþjónustunnar og í þjónustu við fatlaða voru tilfinningar fremur til umræðu en innan hinna tveggja starfsgreinanna. Leiðsögukennari var Ingólfur Ásg. Jóhannesson, ráðunautur Trausti Þorsteinsson og prófdómari Steinunn Helga Lárusdóttir, menntavísindasviði Háskóla Íslands. Formaður meistaraprófsnefndar var Rúnar Sigþórsson.



