Laugardaginn 5. júní, Sólborg Háskólanum á Akureyri. kl. 9:00-17:00 hefst námskeiðið:
Fuglar og fuglaskoðun á vegum Símenntunar Háskólans á Akureyri í samstarfi við Náttúrustofu Norðausturlands.
Skráning stendur nú yfir.
Námskeiðið hefst á fyrirlestri þar sem gerð verður grein fyrir íslenskum fuglum með sérstakri áherslu á Norðausturland. Farið verður yfir einkenni íslensku fuglafánunnar, hvernig sé best að bera sig að við fuglaskoðun og hvað þurfi til. Sagt verður frá helstu tegundum fugla, greiningareinkennum lýst sem og búsvæðum. Áætlað er að fyrirlesturinn sé um klukkustund. Að honum loknum verður haldið í fuglaskoðunarferð til Mývatnssveitur og fuglar skoðaðir þar og á leiðinni. Reynt verður að sjá sem flestar tegundir. Þeir sem sækja námskeiðið þurfa að keyra á sínum bílum en reynt verður að sameina í bíla eins og hægt er. Þátttakendur þurfa að sjá sér fyrir nesti/uppihaldi.
Kennari: Yann Kolbeinsson, fuglafræðingur á Náttúrustofu Norðausturlands.
Verð: 14.900 kr.
Munið niðurgreiðslur á námskeiðskostnaði hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaganna, allt að 75% af heildarkostnaði.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 4608091; 4608090
Veffang:www.unak.is//
Netfang:simennt@unak.is



