Dagana 24.-25. ágúst síðastliðinn var haldinn við Háskólann á Akureyri árlegur
skipulags- og samráðsfundur Nordkvist. Nordkvist er samstarfsnet innan Nordplus sem hjúkrunarfræðideild HA er þátttakandi í ásamt tólf
öðrum hjúkrunarfræðideildum háskóla á öllum hinum Norðurlöndunum að Finnlandi undanskildu. Á fundinum hér var hins vegar
samþykkt að bjóða finnskum skóla að koma til samstarfs við okkur. Ef af því verður, yrði Nordkvist eina samstarfsnet
hjúkrunarfræðideilda innan Nordplus sem ætti þátttakendur frá öllum Norðurlöndunum.Samstarfið gengur að stærstum hluta út
á nemenda- og kennaraskipti og hefur áhugi á því aukist mjög á undanförnum árum, ekki síst nemendaskiptum.
HA nemendur hafa í síauknum mæli nýtt sér að fara í skiptinám erlendis og þá hentar þeim best að taka klínískan hluta námsins á þriðja ári. Á móti hefur HA haft milligöngu um komu erlendra hjúkrunarfræðinema til landsins og taka þeir þá hluta síns náms á stofnunum víða um land. Umsóknum frá erlendum nemendum hefur fjölgað mikið og á hverju ári komast færri að en vilja. Hingað til hefur einungis verið í boði að taka klínískan hluta námsins í skiptinámi bæði hvað varðar okkar nemendur og þá nemendur sem koma hingað til lands. Á fundinum hér kynnti Árún K. Sigurðardóttir hins vegar nýjar hugmyndir þar sem skoðaður er sá möguleiki að nemendur geti einnig farið/komið í heils misseris eða heils árs skiptinám.
Innan netsins eru einnig haldin námskeið reglulega þar sem bæði kennarar og nemendur taka þátt. Kennarar halda fyrirlestra sem tengjast yfirskrift námskeiðsins hverju sinni og vinna síðan í hópavinnu ásamt nemendum. Er venja að hverju sinni sé einn kennari og 2-4 nemendur frá hverjum skóla. Síðast var slíkt námskeið haldið í Luleå í norður Svíþjóð haustið 2009 og stóð það í fimm daga. Yfirskrift þess námskeiðs var „Fra Stykkevis til helt” Rehabilitering, sundhedsfremme og sygepleje-med fokus på langvarig/kronisk syge patienter.
Á fundinum hér á Akueyri var farið yfir samstarfið á liðnu ári og það sem framundan er í áðurnefndum verkefnum. Til stendur að stofna heimasíðu Nordkvist og hefur HA tekið að sér að sjá um að fylgja uppbyggingu síðunnar eftir en umsýsla síðunnar verður í höndum samstarfsskóla í Stokkhólmi.
Þar sem samstarfsnet innan Nordplus eru fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni var einnig farið yfir hverjar áherslur næstu umsóknar til Nordplus verða, en umsókn um styrk til áframahaldandi samstarfs þarf að endurnýja árlega. Nordplus gefur út meginmarkmið og áherslur samtakanna fyrir hvert ár og 2010 voru þær:
o Loftlagsmál
o Þróun sameiginlegra námsleiða (joint study programmes)
o Sameiginleg þróun námskráa
o Gæðastjórnun á háskólastigi
o Endurnýjun og stækkun neta
Eftir að fundi var lokið fór hópurinn saman í dagsferð í Mývatnssveit þar sem íslensk náttúra var skoðuð. Á heimleið þaðan var staldrað við í Maríugerði hjá Sigurði Bjarklind óðalseiganda og aðjúnkt við heilbrigðisvísindasvið HA. Þar tók hann á móti hópnum ásamt all flestum kennurum fræðasviðsins, og var hópurinn boðinn velkominn með ómandi söng og varðeldi. Ógleymanleg upplifun að sögn allra.
Hér er tengill inn á heimasíðu Landsskrifstofu Norplus á Íslandi
Hér er tengill inn á heimasíðu Aðalsíða Rammaáætlunar Nordplus



