Fimmtudaginn 18. mars kl. 12:35 - 16:05 verður opið
málþing á vegum heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Fjallað verður um þá þætti í starfsemi
heilbrigðisstofnana sem hafa bein og óbein áhrif á gæði heilbrigðisþjónustu og hvernig einstakar stofnanir tryggja gæði til handa
skjólstæðingum sínum á tímum samdráttar. Yfirskritin er Gæði heilbrigðisþjónustu á tímum
samdráttar.
Dagskrá:
Kl. 12:35 – 12:40 Setning málþings
Kl. 12:40 – 13:05 Hvernig metum við gæði heilbrigðisþjónustu? Leifur Bárðarson, yfirlæknir á gæðadeild, Vísinda-, kennslu og gæðasviði LSH
Kl. 13:05 – 13:30 Getur breytt skipulag skilað betri gæðum? Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs LSH
Kl. 13:30 – 13:55 Hvernig viðheldur heilsugæslan gæðum í heilbrigðisþjónustu? Margrét Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri
Kl. 13:55 – 14:20 Skipta gæðakerfi og klínískar leiðbeiningar máli? Oddur Ólafsson, svæfingalæknir og formaður gæðaráðs FSA
Kl. 14:20 – 14:40 Kaffihlé
Kl. 14:40 – 15:05 Hvernig verða gæði þjónustu og öryggi sjúklinga tryggð í fyrirhuguðum lagaramma um heilbrigðisstarfsmenn? Sigríður Sía Jónsdóttir, formaður hjúkrunarráðs FSA
Kl. 15:05 – 15:30 Hvernig tryggjum við mönnun heilbrigðisþjónustu? Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga
Kl. 15:30 – 16:00 Pallborðsumræður
Kl. 16:00 – 16:05 Slit málþings
Stjórnandi málþings: Árún K. Sigurðardóttir, prófessor og forseti heilbrigðisvísindasviðs HA. Málstofan er hluti af meistaranámi í stjórnun við heilbrigðisvísindasvið HA og fer fram í stofu L201 á Sólborg.
Allir velkomnir
Hægt er að hlusta á upptöku frá málþinginu hér: mms://media.unak.is/h_100319
Málþingið verður sent út í beinni útsendingu á slóðinni mms://media.unak.is/malthing



