Litadýrð á morgunhimninum 27. desember var áberandi og voru eftirfarandi myndir af glitskýjum teknar við Háskólann á Akureyri um
klukkan 10.15.
Glitský eru ákaflega fögur marglit ský sem myndast í heiðhvolfinu, oft í um 15 - 30 km hæð. Glitský sjást helst um miðjan
vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini,
þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð.
Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (svonefnt perlumóðurlag
í perluskeljum), og eru þau því nefnd perlumóðurský (e. nacreous clouds) í ýmsum tungumálum. Þau myndast þegar
óvenju kalt er í heiðhvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C) og eru úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og
saltpétursýru-hýdrata (til dæmis HNO3 3H2O).
Kristallarnir í skýjunum beygja sólarljósið, en mismikið eftir bylgjulengd þess. Þannig beygir blátt ljós meira en rautt. Rauða
ljósið kemur því til okkar undir öðru horni en það bláa, þannig að okkur sýnist það koma frá öðrum hluta
glitskýsins. Litaröðin frá jaðri inn til miðju skýsins er stundum eins og vísuorðin: gulur, rauður, grænn og blár en oft er
skýið einnig hvítt í miðju. Litirnir eru líka háðir stærðardreifingu agna í skýjunum, þannig að oft má
sjá rauða, gula og græna flekki í bland. (Vísindavefurinn 27. desember 2011).
Flýtilyklar
Glitský við sólaruppkomu
Leit
Efst á baugi
Á næstunni
föstudagur 18. maí 2012
föstudagur 18. maí 2012
mánudagur 21. maí 2012



