Háskólinn á Akureyri

Grein í tímaritinu Baltic Journal of Economics Nýlega birti ISI-tímaritið Baltic Journal of Economics grein eftir Hilmar

Grein í tímaritinu Baltic Journal of Economics

Hilmar Þór Hilmarsson prófessorNýlega birti ISI-tímaritið Baltic Journal of Economics grein eftir Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri. Grein sem nefnist: „How can the Baltic States as Non-DAC donors best contribute to international development cooperation?“

Í grein sinni fjallar Hilmar um þróunaraðstoð Eystrasaltsríkjanna í Austur-Evrópu og Mið-Asíu, en vegna aðildar að Evrópusambandinu þurfa Eystrasaltsríkin að auka aðstoð sína verulega á næstu árum.  Í greininni ræðir Hilmar tillögur um hvernig Eystrasaltsríkin geti hugsanlega aukið vægi aðstoðar sinnar frekar með þátttöku í umræðum um efnahagsumbætur samhliða fjárlagastuðningi og tækniaðstoð. Í þessu samhengi fjallar Hilmar líka um nauðsyn samhæfingar við alþjóðafjármálastofnanir og önnur lönd sem aðstoða sömu ríki og Eystrasaltsríkin gera nú og mikilvægi þess að alþjóðasamfélagið nýti reynslu og þekkingu Eystrasaltsríkjanna við framkvæmd efnahagsumbóta landa sem skemmra eru á veg komin t.d. í Austur-Evrópu og Mið-Asíu.

Baltic Journal of Economics er gefin út af Stockholm School of Economics og the Baltic International Centre for Economic Policy Studies.

Grein Hilmars má finna hér:  http://www.biceps.org/sites/default/files/bje/Hilmarsson_0.pdf



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Ţverfagleiki náms viđ HA gerir manni kleift ađ sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir ţví ađ hafa valiđ HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf