Háskólinn á Akureyri fékk nýlega Diploma Supplement vottun (DS Label) en það þýðir
að skírteinisviðaukinn sem stúdentar háskólans fá við brautskráningu er skv. fyrirmælum framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins (European Commisson). Viðaukanum er ætlað að veita hlutlægar upplýsingar um námið í HA, bæta
alþjóðlegt „gegnsæi" og stuðla þannig að viðurkenningu náms frá HA hjá menntastofnunum alþjóðlega og á
vinnumarkaði.
Það er viðurkenning fyrir háskólann að fá þessa vottun (DS Label) en formleg afhending hennar fer fram í Kaupmannahöfn 8. maí 2012 í tilefni af 25 ára afmæli ERASMUS áætlunarinnar.
Nánari upplýsingar um Diploma Supplement má finna hér.



