Þrjú rannsóknarverkefni á vegum Háskólans á Akureyri voru kynnt á
ráðstefnu alþjóða örveruvistfræðifélagsins, International Symposium for Microbial Ecology, í Seattle í Bandaríkjunum
dagana 22. til 27. ágúst, sl. Verkefnin fjölluðu um afmarkaða þætti í örveruvistfræði norðurslóða og féllu
því vel að dagskrá ráðstefnunnar þar sem málefni á borð við áhrif hnattrænnar hlýnunar á
örverulífríki heimskautasvæðanna voru mjög til umræðu. Verkefnin, sem vöktu all nokkra eftirtekt og umræður, voru öll undir
stjórn Odds Vilhelmssonar, dósents við auðlindadeild, og voru eftirfarandi:
· Microbial diversity of Glerá river, northern Iceland: effects of a landfill site eftir Maríu Markúsdóttur, Arnheiði Eyþórsdóttur og Odd Vilhelmsson þar sem lýst var örverulífríki Glerár og þeim áhrifum sem sorphaugarnir á Glerárdal hafa þar á. Verkefnið, sem er MS-verkefni Maríu, var styrkt af Háskólasjóði KEA.
· Characterization of the non-phototrophic bacterial symbiomes of Icelandic seashore lichens eftir Önnu Rut Jónsdóttur, Kristin P. Magnússon, Starra Heiðmarsson og Odd Vilhelmsson þar sem lýst var tegundasamsetningu og einkennisþáttum ræktanlegra sambýlisörvera fjögurra strandfléttna í Eyjafirði. Verkefnið, sem er MS-verkefni Önnu Rutar, var styrkt af Rannsóknasjóði Rannís.
· Comparative metagenomic analysis of the non-cyanobacterial symbionts of two Peltigera lichens eftir Odd Vilhelmsson, Önnu Rut Jónsdóttur, Hákon Jónsson, Véstein Snæbjarnarson, Martin Grube og Ólaf S. Andrésson þar sem lýst var tegundasamsetningu ræktanlegra sem óræktanlegra sambýlisörvera himnuskófar og mattaskófar eftir því sem lesa má úr heildarerfðamengi sambýlisins. Í verkefninu er nýttur efniviður úr erfðamengjaraðgreiningu skófanna, sem styrkt er af Rannsóknasjóði Rannís.



