Í síðustu viku var töluvert um erlendar heimsóknir til
Háskólans á Akureyri. Prófessorar og aðstoðarrektorar frá Tækniháskólanum í Varsjá, Póllandi komu
í heimsókn á vegum orkuháskólans RES en RES er í EFTA samstarfi við fimm pólska tækniháskóla.
Samstarfsháskólarnir eru ásamt Tækniháskólanum í Varsjá (Warsaw University of Technology), Rzeszow University of Technology, West
Pomeranian University of Technology, AGH University of Science and Technology in Krakow og University of Warmia and Mazury in Olsztyn.
Pólsku gestirnir hittu starfsfólk RES og pólska meistaranemendur í endurnýjanlegum orkufræðum. Þeir áttu einnig fund með Stefáni B. Sigurðssyni rektor en þar var mikið rætt um gæði háskólanáms, inntökuskilyrði og menningarleg málefni. Þess má geta að gestirnir frá Póllandi heimsóttu einnig í ferð sinni til Íslands: Háskóla Íslands, Landsvirkjun, Hellisheiðarvirkjun, Þingvelli, Gullfoss og Geysi.
Einnig komu gestir frá Háskólanum Maribor, Slóveníu í heimsókn. Andreja Čurin verkefnisstjóri alþjóðasamskipta, Tomaš Kranberger prófessor og Damjana Medeved Arbeiter skrifstofustjóri skoðuðu Háskólann á Akureyri og hittu m.a. alþjóðafulltrúa HA, rektor og starfsfólk viðskiptadeildarinnar en markmið heimsóknarinnar var að styðja við sameiginleg rannsóknaverkefni auk nemenda og kennaraskipta. Þess má geta að í heimsókninni var gengið frá erasmus samningi milli háskólanna tveggja.
Á myndinni eru pólsku gestirnir ásamt meistaranemendum RES.



