Sunnudaginn 4. desember kl. 11.00 verður heimspekikaffihús sem fyrr á Bláu könnunni.
Aðstandendur þessa mannfagnaðar eru Félag áhugafólks um heimspeki, Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri og
Bláa kannan. Samkomurnar hafa verið vel sóttar og umræður líflegar að loknum inngangserindum málshefjenda.
Að þessu sinni mun Katrín Jakobsdóttir fjalla um: Heimspekileg samræða – samfélagsleg samræða.
Hugmyndin um heimspekikaffihús á rætur að rekja til morgunfundar heimspekings og nokkurra kunningja hans á kaffihúsi í París árið 1992. Róbert Jack, heimspekingur og höfundur bókarinnar Hversdagsheimspeki (Háskólaútgáfan 2006), stóð fyrir fyrsta íslenska heimspekikaffihúsinu haustið 2005. Heimspekikaffihús er ekki háfleyg rökræða nokkurra útlærðra heimspekinga heldur heimspekileg samræða á venjulegu mannamáli. Hver sem er getur tekið þátt í henni svo framarlega sem hann er tilbúinn að hlusta á aðra og færa rök fyrir máli sínu.



