Föstudaginn 20. janúar mun Günter Wohlfart, prófessor emerítus við Wuppertal háskóla,
flytja erindi á hug- og félagsvísindatorgi undir yfirskriftinni: Eilífur friður - eilíft stríð: hugleiðingar um Kant, Herklítos og
Sunzi. Torgið er kl. 12.00-13.00 í stofu M102 á Sólborg. Allir velkomnir.
Í þessu erindi verður leitast við að sýna hvernig forn-kínversk heimspeki getur gert okkur kleift að bregðast með friðsamlegri vörnum gegn hinni stöðugu hættu á stríðum og finna framkvæmanlegan meðalveg milli hreinræktaðrar árásargirni og óraunhæfrar friðarstefnu. Erindið skiptist í eftirfarandi hluta:
1. Kant: Eilífur friður - ljúfur draumur
2. Heraklítos: Eilíft stríð: stríð er faðir alls
3. Sunzi: Hernaðarlistin: hvernig sigrast eigi á óvininum án bardaga
Günter Wohlfart er á landinu sem gestur íslensku Konfúsíusarstofnunnar. http://www.guenter-wohlfart.de/curriculum.htm



