Fimmtudaginn 11. mars kl. 12.00-13.00 fjallar Hjálmar Stefán Brynjólfsson um merkingarreglur útfrá riti Þorsteins Gylfasonar:Að hugsa á íslenzku. Torgið fer fram í stofu L102, Sólborg. Allir velkomnir.
Erindið byggir á lokaritgerð Hjálmars til BA prófs í nútímafræði, sem nefnist Reglur eru til þess að brjóta þær, right. Í ritgerðinni er því meðal annars haldið fram að regluhugtakið sem Þorsteinn notast við í Að hugsa á íslenzku taki um of mið af bindandi eða skipandi eðli reglna. Bent er á að þó reglur séu vissulega bindandi, þá sé það ekki einasta einkenni þeirra. Reglur koma í fjölmörgum myndum, en með þessum athugasemdum er ekki loku fyrir það skotið að hugmyndin um merkingarreglur fái staðið.
Hjálmar Stefán Brynjólfsson er meistaranemi í lögfræði við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri.
Hann lauk bakkalárgráðu í lögfræði við Háskólann á Akureyri 2006 og fjallaði lokaritgerð hans þá um
póstmóderníska réttarheimspeki.



