Háskólinn á Akureyri

Hugvísindatorg: Breyting á veðurfari og alheimsábyrgð Fimmtudaginn 25. febrúar kl. 14:30 - 15:30 flytur Dr. Nigel Dower erindið Breyting

Hugvísindatorg: Breyting á veðurfari og alheimsábyrgð

Dr. Nigel DowerFimmtudaginn 25. febrúar kl. 14:30 - 15:30 flytur Dr. Nigel Dower erindið Breyting á veðurfari og alheimsábyrgð á hugvísindatorgi í stofu L102.

Ef gert er ráð fyrir að alþjóðasamfélagið þurfi að draga úr kolefnislosun um 80% eigi síðar en árið 2050, þá þarf að huga að ábyrgð einstaklinganna áður en hugað er að lagabreytingum, félagslegum væntingum eða efnahagslegum þvingunum. Í erindinu ræðir Nigel stuttlega um nokkrar nálganir sem hafa takmarkað gildi og færir rök fyrir því að í nytjahyggju og réttindakenningum sé lagt mikið upp úr því að einstaklingarnir beri ábyrgð á breytingum á eigin lífstíl og taki virkan þátt í borgaralegu samfélagi.

Dr. Nigel Dower er Honorary Senior Lecturer við Háskólann í Aberdeen í Skotlandi og hefur unnið í alheimssiðfræði síðustu þrjátíu árin. Meðal bóka eftir Nigel eru World Ethics the New Agenda (1998) og The Ethics of War and Peace (2009).



Nemendur

Starfsmenn

Á næstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ingólfur Friðriksson

„Í lögfræðinni við HA fékk ég djúpan skilning á viðfangsefninu og tileinkaði mér öguð vinnubrögð.“

Ingólfur Friðriksson sérfræðingur á viðskiptasviði utanríkisráðuneytisins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf