Fimmtudaginn 19.
ágúst kl. 14.00-15.00 í stofu L101 á Sólborg flytur Fred E. Woods prófessor fyrirlesturinn: Laxness og hinir síðari daga heilögu:
Staðreyndir að baki skálsögunnar Paradísarheimt. Sérstaklega verður rætt um heimsóknir Halldórs laxness til vesturheims, tengsl
hans við mormónatrúna og skrif skáldsögunnar Paradísarheimt. En þess má geta að í ár eru 50 ár liðin frá
því að Paradísarheimt kom út.
Fyrirlesarinn Fred E. Woods er með B.S. gráðu í sálfræði (1981) og M.S.gráðu í alþjóðasamskiptum (1985) frá Brigham Young University.Árið 1991 lauk hann doktorsgráðu í miðausturlandafræðum frá University of Utah þar sem hann lagði áherslu á hebresku biblíuna. Hann kenndi við Rick College (sem nú heitir BYU-Idaho) frá 1993-1998 og síðasta áratuginn hefur hann verið prófessor við Brigham Young University við deild þeirra um trúarsögu og kennisetningar Mormónakirkjunnar. Fred E. Woods hefur haldið fyrirlestra við fjölmarga háskóla í Bandaríkjunum sem og annars staðar í heiminum. Bók Woods, Eldur á ís: Saga hinna íslensku síðari daga heilögu heima og að heiman kom út í þýðingu Friðriks Rafns Guðmundssonar hjá Háskólaútgáfunni árið 2007.



