Á fimmta áratug síðustu aldar byggðu Akureyrarbær og
ríkissjóður rúmlega 900 fermetra hús við Þórunnarstræti á Akureyri. Byggingarkostnaður skiptist milli ríkis (75%) og
bæjar (25%). Allt til ársins 1984 var starfræktur húsmæðraskóli í húsinu en það haust var Verkmenntaskólinn á
Akureyri stofnaður og fékk hann þá húsið til afnota. Háskólinn á Akureyri hefur nýtt húsið með hléum frá
því um 1990, fyrstu árin í samvinnu við VMA.
Nú hefur Alþingi heimilað, sbr. fjárlög 2012, sölu á eignarhluta ríkisins í húsinu og að nýta megi söluandvirðið til að ljúka V. byggingaráfanga Háskólans á Akureyri á Sólborg við Norðurslóð. Öll regluleg starfsemi háskólans fer nú á fram Sólborg og því hefur háskólinn ekki lengur þörf fyrir umrætt húsnæði við Þórunnarstræti.
Menntamálaráðuneytið hefur óskað eftir því að Háskólinn á Akureyri annist undirbúning málsins og samskipti við Akureyrarbæ vegna eignarhluta ríkisins. Rætt var við Ólaf Búa Gunnlaugsson forstöðumann fasteigna og reksturs á fréttastofu Ríkisútvarpsins 12. janúar vegna málsins og má nálgast fréttina hér.



