Miðvikudaginn 25. janúar mun Brynhildur Pétursdóttir
fulltrúi hjá Neytendasamtökunum flytja erindi undir yfirskriftinni Umhverfi og neysla. Torgið hefst kl. 12.00 og er haldið í stofu M102. Allir
velkomnir.
Eins og alkunna er þá hefur fólk oftar en ekki litla sem enga tengingu við framleiðslu neysluvarnings sem gjarnan fer fram í fjarlægum löndum. Í erindi á félagsvísinda- og jafnréttistorgi fjallar Brynhildur Pétursdóttir um áhrif neyslu á umhverfið. Brynhildur veltir því upp hver sé ábyrgð neytenda. Einnig mun hún minnast á mismunandi neyslumynstur kynjanna og hvort konur leiki ef til vill mikilvægara hlutverk varðandi siðræna neyslu en þær geri sér grein fyrir.
Brynhildur er sérfræðingur Neytendasamtakanna í siðrænni neyslu og umhverfismálum og hefur skrifað fjölda greina um málaflokkinn. Hún er jafnframt ritstjóri Neytendablaðsins.



