Háskólinn á Akureyri

Jafnréttis- og félagsvísindatorg: Umhverfi og neysla Miðvikudaginn 25. janúar mun Brynhildur Pétursdóttir fulltrúi

Jafnréttis- og félagsvísindatorg: Umhverfi og neysla

Brynhildur Pétursdóttir. Mynd: visir.isMiðvikudaginn 25. janúar mun Brynhildur Pétursdóttir fulltrúi hjá Neytendasamtökunum flytja erindi undir yfirskriftinni Umhverfi og neysla. Torgið hefst kl. 12.00 og er haldið í stofu M102. Allir velkomnir.

Eins og alkunna er þá hefur fólk oftar en ekki litla sem enga tengingu við framleiðslu neysluvarnings sem gjarnan fer fram í fjarlægum löndum. Í erindi á félagsvísinda- og jafnréttistorgi fjallar Brynhildur Pétursdóttir um áhrif neyslu á umhverfið.  Brynhildur veltir því upp hver sé ábyrgð neytenda. Einnig mun hún minnast á mismunandi neyslumynstur kynjanna og hvort konur leiki ef til vill mikilvægara hlutverk varðandi siðræna neyslu en þær geri sér grein fyrir.

Brynhildur er sérfræðingur Neytendasamtakanna í siðrænni neyslu og umhverfismálum og hefur skrifað fjölda greina um málaflokkinn. Hún er jafnframt ritstjóri Neytendablaðsins.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Markús Jóhannesson

„Sjávarútvegsfrćđin er áhugavert og hagnýtt nám sem opnar ýmsa atvinnumöguleika, ekki síst á alţjóđlegum vettvangi. “

Markús Jóhannesson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf