Háskólinn á Akureyri

Jafnréttistorg Á jafnréttistorgi miðvikudaginn 3. mars mun Anna Lilja Þórisdóttir, MA í blaða- og

Jafnréttistorg

Anna Lilja ÞórisdóttirÁ jafnréttistorgi miðvikudaginn 3. mars mun Anna Lilja Þórisdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku, fjalla um glænýja meistararannsókn sína sem nefnist Dáðleysi kvenna. Eða er öðru um að kenna? Stjórnmálakonur í fjölmiðlum fyrir Alþingiskosningarnar 2009.

Anna Lilja skoðaði hversu oft stjórnmálakonur og –karlar birtust í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu mánuðinn fyrir Alþingiskosningarnar 2009. Hún skoðaði bæði fréttir og aðra kosningaumfjöllun og einnig kynjahlutfall álitsgjafa og sérfræðinga.

Rannsóknin leiddi í ljós að umfjöllunin endurspeglaði ekki kynjahlutföll frambjóðendanna í Alþingiskosningunum 2009. Stjórnmálakarlar fengu meiri umfjöllun en fjöldi þeirra á framboðslistum gaf tilefni til og stjórnmálakonur fengu á sama hátt minni umfjöllun. Stjórnmálakarlar og -konur voru jafn virk við að senda inn greinar til dagblaðanna tveggja.  Niðurstöðurnar voru bornar saman við niðurstöður fyrri rannsókna og settar í samhengi við siðareglur fjölmiðla og lög og reglugerðir sem kveða á um jafnan rétt kynjanna.

Anna Lilja lauk meistaraprófi í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands, félags- og mannvísindadeild – félagsvísindasviði -  í febrúar síðastliðnum.

Anna Lilja er með B.Ed próf frá Kennaraháskóla Íslands 1996, lauk prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá HÍ 2002 og MA frá HÍ 2010. Anna Lilja hefur starfað við blaðamennsku, kennslu og vefstjórn.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf