Rætt var við Pál Björnsson, sagnfræðing og dósent við
nútímafræði við Háskólann á Akureyri, í sjónvarpsþættinum Kastljósi í gær 7. desember.
Þóra Arnórsdóttir hitti Pál í Hólavallakirkjugarði og ræddi við hann um framhaldslíf Jóns í
nýútkominni bók hans Jón forseti allur?
Hægt er að horfa á viðtalið á vef Ríkisútvarpsins hér og hefst umfjöllunin þegar 20:50 mínútur eru liðnar af þættinum.
Sama dag var einnig viðtal við Pál í Síðdegisútvarpinu á Rás 2, auk þess sem frétt birtist um bókina á
forsíðu Fréttablaðsins. Síðan var ítarlegt viðtal við hann í þættinum Víðsjá á
Rás 1 þann 8. desember.
Hlusta má á viðtalið á vef Ríkisútvarpsins hér.



