Háskólinn á Akureyri

Kynning á dagskrá afmćlisárs HA Föstudaginn 13. janúar var haldin kynning á dagskrá afmælisárs

Kynning á dagskrá afmćlisárs HA

Þorsteinn Gunnarsson og Stefán B. SigurðssonFöstudaginn 13. janúar var haldin kynning á dagskrá afmælisárs Háskólans á Akureyri. Stefán B. Sigurðsson rektor háskólans hóf kynninguna á stuttu ávarpi en að því loknu tók Þorsteinn Gunnarsson, fyrrverandi rektor og formaður afmælisnefndar HA við og kynnti helstu atriði afmælisársins sem framundan er.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, forstöðumaður markaðs- og kynningarsviðs og framkvæmdastjóri afmælisnefndarinnar, ýtti úr vör ljósmyndasamkeppni sem mun standa til 15. júní nk. og ber yfirskriftina Líf og störf fólks í Háskólanum á Akureyri. Hún opnaði einnig nýjan afmælisvef en þar verða að finna allar upplýsingar um dagskrárliði og viðburði afmælisársins auk ljósmynda í fórum háskólans.
Að síðustu sagði Bragi Guðmundsson prófessor við kennaradeild frá vinnu við undirbúning sögulegs afmælisrits sem gefið verður út í tilefni aldarfjórðungsafmælisins en hann er ritstjóri verksins.

Nánari upplýsingar um dagskrá afmælisársins er að finna á afmælisvef háskólans.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Vigdís Ósk Sveinsdóttir

„Lotukennsla, símat, toppkennarar og persónulegt umhverfi er ţađ sem lögfrćđikennslan viđ HA býđur upp á.“

Vigdís Ósk Sveinsdóttir hdl. hjá Lögmönnum Höfđabakka
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf