Háskólinn á Akureyri

Leiðir til að draga úr kannabisneyslu unglinga Ný rannsókn á vegum Háskólans á Akureyri og fleiri

Leiðir til að draga úr kannabisneyslu unglinga

Þóroddur BjarnasonNý rannsókn á vegum Háskólans á Akureyri og fleiri aðila sýnir fram á að aðgerðir til að draga úr framboði kannabisefna og fræðsla til að draga úr eftirspurn slíkra efna geta sameiginlega dregið umtalsvert úr kannabisneyslu unglinga á landvísu.

Margar rannsóknir hafa leitt í ljós að unglingar sem nota kannabisefni eiga auðveldara með að nálgast slík efni og telja þau skaðminni en aðrir unglingar. Hart hefur verið deilt um það orsakasamband sem þessu sambandi liggur til grundvallar. Þótt auðvelt aðgengi og jákvæð viðhorf kunni að hafa áhrif á neyslu unglinganna er einnig líklegt að unglingar sem nota kannabisefni eigi auðveldara með að nálgast þau og viðhorf þeirra breytist vegna neyslunnar. Langtímarannsóknir benda til að hvorutveggja kunni að eiga við rök að styðjast en ekki hefur verið sýnt fram á að fræðsla um skaðsemi kannabisefna eða lögregluaðgerðir til að draga úr framboði slíkra efna geti beinlínis dregið úr útbreiðslu slíkrar neyslu meðal unglinga á landsvísu.

Í rannsókn Þórodds Bjarnasonar, Andreeu Steriu og Önnu Kokkevi sem birtist í ISI tímaritinu Drugs: Education, Prevention, and Policy er fjölstigaaðhvarfsgreiningu (hierarchical linear modeling) beitt til þess að kanna áhrif aðgengis og viðhorfa í unglingasamfélaginu á líkurnar á neyslu kannabisefna meðal 85 þúsund 15-16 ára unglinga í rúmlega þrjátíu Evrópulöndum. Þetta er gert með því að nota viðhorf þeirra nemenda sem aldrei hafa prófað kannabisefni sem forspá og stjórna tengslum viðhorfa og hegðunar þeirra sem hafa notað kannabisefni. Í ljós kemur að neikvæð viðhorf og lítið aðgengi unglinga sem aldrei hafa notað kannabisefni draga marktækt úr líkunum á slíkri neyslu á landsvísu. Þessar niðurstöður styðja þá forvarnarstefnu EMCDDA og UNDOC að flétta þurfi saman fræðslu og lögregluaðgerðum til að draga úr kannabisneyslu unglinga.



Nemendur

Starfsmenn

Á næstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ingólfur Friðriksson

„Í lögfræðinni við HA fékk ég djúpan skilning á viðfangsefninu og tileinkaði mér öguð vinnubrögð.“

Ingólfur Friðriksson sérfræðingur á viðskiptasviði utanríkisráðuneytisins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf