Háskólinn á Akureyri

Lögfrćđitorg Þriðjudaginn 26. janúar flytur Ásgeir Örn Jóhannsson, hdl. erindið Að afla sér

Lögfrćđitorg

Ásgeir Örn JóhannssonÞriðjudaginn 26. janúar flytur Ásgeir Örn Jóhannsson, hdl. erindið Að afla sér réttinda - laganám og annar undirbúningur á lögfræðitorgi kl. 12:00 í stofu L201. Vorið 2008 voru í fyrsta skiptið útskrifaðir nemendur með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri. Nemdendur úr fyrstu tveimur útskriftarárgöngunum vinna nú sem lögfræðingar víða um land og þeir fyrstu hafa þegar aflað sér réttinda til að flytja mál í héraði og mega því kalla sig héraðsdómslögmenn. Allir lögmenn eru lögfræðingar, þ.e. hafa lokið B.A. eða B.S. prófi og meistaragráðu í lögfræði við lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi.
Til þess að öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum þarf lögfræðingur að sækja sérstakt námskeið og standast bóklega og verklega prófraun, sem nær til þeirra þátta sem snúa að störfum lögmanna, þar á meðal siðareglna lögmanna.

Í erindi sínu ræðir Ásgeir Örn Jóhannsson, hdl. um reynslu sína af námi við lagadeild Háskólans á Akureyri en hann var einn þeirra sem útskrifuðust frá deildinni vorið 2008. Ásgeir fjallar um það hvernig námið hafi dugað honum sem undirbúningur fyrir lögfræðistörf almennt og námskeiðið sem ætlað er til undirbúnings fyrir þá sem vilja afla sér réttinda sem héraðsdómslögmenn.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf