Háskólinn á Akureyri

Lögfrćđitorg Þriðjudaginn 9. mars kl. 12:00 ræðir Ginta Leimane um ólöglega innflytendur í

Lögfrćđitorg

Þriðjudaginn 9. mars kl. 12:00 ræðir Ginta Leimane um ólöglega innflytendur í Eystrasaltsríkjunum eftir inngöngu í Evrópusambandið á lögfræðitorgi. Torgið fer fram í stofu L201, Sólborg, allir velkomnir.

Á þeim tíma sem liðinn er frá því að Eystrasaltsríkin, Eistland, Lettland og Litháen fengu aðild að Evrópusambandinu hefur mikið breyst í löndunum þremur. Eitt af því sem hefur verið hvað mest áberandi í því samhengi er stórkostleg fjölgun ólöglegra innflytjenda. Þessi þróun hefur styrkst mikið frá því að nýju ESB-ríkin urðu aðilar að Schengen-samkomulaginu um sameiginleg ytri landamæri aðildarríkjanna. Í erindi sínu á Lögfræðitorg ræðir Ginta Leimane um viðbrögð stjórnvalda í Eystrasaltríkjunum við þessari flóðbylgju fólks sem kemur til landanna þriggja í leyfisleysi og leitar svara við spurningunni um áhrif versnandi efnahags ríkjanna (kreppan) í þessu sambandi.

 

Ginta Leimane ( L.L.M., PhD cand) er lektor við Háskólann í Riga (Riga Stradins University). Í rannsóknunum sínum hefur hún einbeitt sér að lögum um flóttamenn og innflytjendur, stjórnskipunarrétti og tengslunum milli mannfræði og lögfræði.



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Gústaf Línberg Kristjánsson

„Sjávarútvegsfrćđi er ţverfaglegt nám sem gefur möguleika á fjölbreyttu meistaranámi.“

Gústaf Línberg Kristjánsson nemandi í sjávarútvegsfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf