Háskólinn á Akureyri

Lögfræðitorg: Endurskoðun eða uppstokkun? Þriðjudaginn 31. janúar mun Ágúst Þór

Lögfræðitorg: Endurskoðun eða uppstokkun?

Ágúst Þór ÁrnasonÞriðjudaginn 31. janúar mun Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt og deildarformaður í lagadeild Háskólans á Akureyri, flytja erindi undir yfirskriftinni: Endurskoðun eða uppstokkun? Stjórnskipun lýðveldisins á tímamótum. Torgið hefst kl. 12.00 og er í stofu M102 á Sólborg v/Norðurslóð. Allir velkomnir.

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði stjórnlagaráð tillögum sínum í formi frumvarps til Alþingis 29. júlí 2011. Tillagan er umfangsmikil og róttæk svo segja má að hreyft sé við öllum ákvæðum gildandi stjórnarskrár.

Í erindi sínu á lögfræðitorgi veltir Ágúst Þór því fyrir sér hvaða leiðir séu færar í þeirri stöðu sem nú blasir við í endurskoðunarferlinu.

Ágúst Þór Árnason er deildarformaður í lagadeild Háskólans á Akureyri.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á næstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Elísabet Þórunn Jónsdóttir

„Þjónustan á bókasafni HA er hreint út sagt frábær! Framboðið er til fyrirmyndar og starfsfólkið hjálpsamt.“

Elísabet Þórunn Jónsdóttir nemandi í félagsvísindum
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf