Háskólinn á Akureyri

Lögfræðitorg: Hvað er þetta ESB? Þriðjudaginn 2. febrúar kl. 12:00 mun Eiríkur Bergmann fjalla um ESB á

Lögfræðitorg: Hvað er þetta ESB?

Eiríkur BergmannÞriðjudaginn 2. febrúar kl. 12:00 mun Eiríkur Bergmann fjalla um ESB á lögfræðitorgi í stofu L201, Sólborg.

Aðild Íslands að Evrópusambandinu er eitthvert umdeildasta mál síðari tíma. En hvað er þetta ESB? Hver er saga þess? Hvernig er það byggt upp? Í erindi sínu ræðir Eiríkur Bergmann um eðli Evrópusamvinnunar og þau áhrif sem Evrópusambandið hefur nú þegar á líf, störf og viðskipti Íslendinga – og hvað breytist ef ákveðið verður að ganga í sambandið. Eiríkur leitar einnig svara við spurningunni um það hvað samvinna þessara 27 aðildarríkja snúist.

Dr. Eiríkur Bergmann er dósent í stjórnmálafræði og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst. Hann hefur starfað sem blaðamaður, upplýsingafulltrúi hjá Evrópusambandinu og sem aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess að kenna við ýmsa erlenda háskóla. Eiríkur hefur tekið þátt í margvíslegu evrópsku rannsóknarsamstarfi á fræðasviði sínu, er til að mynda þátttakandi í SENT-samstarfsneti Evrópufræða. Eftir hann liggur fjöldi bóka og greina, bæði ritrýndra og almenns eðlis, auk ritgerða, fyrirlestra og álitsgerða um þjóðfélagsmál, sér í lagi um tengsl Íslands við umheiminn. Hann hefur um árabil ritað reglulega dálka í dagblöð, til að mynda í DV, Blaðið/24 stundir og nú í breska dagblaðið The Guardian.

Fyrir jólin kom út bók Eiríks „Frá Evróvisjón til evru” en hún hefur að geyma svör við ýmsu því sem fólk veltir nú fyrir sér um Evrópusambandið en eins og alkunna er þá hafa stjórnvöld sótt um aðild að sambandinu.



Nemendur

Starfsmenn

Á næstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Sif Eiðsdóttir

„Viðskiptafræðinámið í HA er krefjandi en jafnframt skemmtilegt og áhugavert. “

Helga Sif Eiðsdóttir viðskiptafræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf