Þriðjudaginn 24. janúar mun Peter Ørebech prófessor flytja erindi á lögfræðitorgi undir yfirskriftinni: Makríldeilan undir sjónarhorni alþjóðalaga og stjórnmála. Torgið hefst kl. 12.00 í stofu M102 Sólborg v/Norðurslóð.
Erfiðlega hefur gengið að finna lausn á svokallaðri makríldeilu Íslendinga við Norðmenn og Evrópusambandið. Í erindi sínu á lögfræðitorgi skoðar Peter Ørebech prófessor við Sjávarútvegsháskóla Noregs hjá Háskólanum í Tromsø og gestaprófessor við Háskólann á Akureyri deilurnar út frá reglum þjóðaréttar og afstöðu hagsmunaaðila og stjórnmálamanna
Peter Ørebech er í forsvari fyrir rannsóknir á sviði virðiskeðjugreiningu í sjávarútvegsháskóla í Tromsø, en rannsóknir hans eru líka á sviði sjávarútvegsréttar, Evrópuréttar, hafréttar og réttarsögu.
Hér má hlusta á upptöku af erindinu http://video.unak.is/player/?r=3fd8f44b-569e-4aa3-9ad3-1d53d4407f17 .



