Á lögfræðitorgi þriðjudaginn 10. janúar mun Peter Örebech,
prófessor við Háskólann í Tromsö, halda erindi undir yfirskriftinni: Norska leiðin – Hvernig ákveða Norðmenn úthlutun
fiskveiðikvóta? Fyrirlesturinn fer fram í stofu M102 á Sólborg og hefst kl. 12.00.
Samkvæmt ákvörðun Norska Stórþingsins ber ríkisendurskoðanda að fylgjast með að ráðuneyti landsins fari að lögum. Samband strandveiðibáta heldur því fram að sjávarútvegsráðuneytið brjóti lög um rétt landsmanna til að stunda fiskveiðar (Deltakerloven) 15. mars 1999 nr. 26 og lög um sjávarfang eða auðlindir hafsins 6. júní 2008 nr. 37 § 2 (havressursloven). Í erindi sínu á lögfræðitorgi fjallar Peter Örebech um innreið framseljanlegs kvóta í norskum sjávarútvegi.
Peter Örebech er prófessor við Háskólann í Tromsö en vinnur sem stendur að rannsóknum innan The EU Framework 7 EcoFishMan project (headed by MATIS) og ber í því sambandi ábyrgð á “the state of the art” study of the Common Fisheries Policy – the legal framework.
Torgið er sent út í beinni útsendingu á vefnum. Smellið á slóðina mms://media.unak.is/malstofa



