Þriðjudaginn 7. febrúar mun Sigurður Líndal prófessor
halda erindi á lögfræðitorgi undir yfirskriftinni: Sögustefnan þýska og sjálfstæðisbarátta Íslendinga. Torgið hefst
kl. 12.00 í stofu M102 á Sólborg.
Upphaf sögustefnunnar í Þýskalandi hefur verið talið andóf við setningu allsherjarlögbókar í anda Napóleons Frakkakeisara.
Í erindi sínu á lögfræðitorgi fjallar Sigurður Líndal maðal annars um spurninguna hvort þýsk lagahefð hafi mótast af
rómverskum eða germönskum réttarhugmyndum. Á 19. öld lögðu þýskir þjóðernissinnar sérstaka áherslu á
hina germönsku arfleifð. Með víðtækum rannsóknum á rétti nálægra þjóða var var leitast við að leiða
í ljós hina germönsku arfleifð sem mótvægi við hina rómversku. Þar töldu Þjóðverjar að íslensk réttarsaga
skipti miklu máli og hófu þar rannsóknir af miklu kappi sem gerð verður stuttleg grein fyrir.
Sigurður ræðir einnig um stöðu íslenskrar lögfræði við Lagadeild Háskólans í Kaupmannahöfn, m.a. réttarsögu. Loks gerir hann nokkura grein fyrir hlut réttarsögunnar í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, eða fyrir sjálfstæðu þjóðríki á Íslandi.
Sigurður Líndal er prófessor við Háskólann á Bifröst og kennari við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands.



