Föstudaginn 24. febrúar mun Steingrímur Jónsson prófessor við
auðlindadeild Háskólans á Akureyri flytja erindi í málstofu auðlindadeildar undir yfirskriftinni: Norður Íslands Irmingerstraumurinn:
Lífæð norðlendinga. Málstofan hefst kl. 12.10 og verður haldin í stofu L102 á Sólborg. Allir velkomnir.
Yfir landgrunninu norðan Íslands eru skilyrði í hafinu afar breytileg. Þar skiptast á tímabil þar sem hlýr og saltur Atlantssjór úr suðri ræður ríkjum og tímabil þar sem nánast lokast fyrir flæði hans um Grænlandssund og kaldur og seltulminni sjór frá norðlægum slóðum tekur yfir. Hafrannsóknastofnunin hefur mælt flæði sjávar inn á landgrunnið norðan Íslands síðan 1994. Að jafnaði samanstendur sjórinn sem flæðir inn á norðurmið af 68% af Atlantssjó en breyitleikinn er mjög mikill. Greint verður frá hugsanlegum áhrifum breytinganna á lífríkið og skoðað hvað það er sem veldur breytingunum.



