Föstudaginn 27. janúar mun Dr. Eyjólfur Guðmundsson
hagfræðingur hjá CCP flytja erindi undir yfirskriftinni: Hugleiðingar um hagvöxt í málstofu auðlindadeildar. Málstofan hefst kl. 12.10 og er haldin
í stofu M203 í Sólborg.
Í málstofunni verður almenn umræða um hvernig eigi að ná fram hagvexti á Íslandi næstu áratugina.



