Fimmtudaginn 19. janúar mun Sigríður Inga Karlsdóttir, ljósmóðir og dósent við
heilbrigðisvísindasvið, halda erindi í málstofu heilbrigðisvísindasviðs undir yfirskriftinni: Hvaða augum líta konur sársauka
í fæðingu? Málstofan verður haldin kl. 12.10-12.55 í stofu M101 að Sólborg við Norðurslóð og er öllum opin.
Lítið hefur verið fjallað innan ljósmóðurfræðinnar um viðhorf kvenna til sársauka í fæðingu, en í þeim fáu erlendu rannsóknum sem hafa verið framkvæmdar benda niðurstöður til mun jákvæðara viðhorfs til sársauka í fæðingu en til annars sársauka. Tilgangur þeirrar rannsóknar sem kynnt verður var að kanna viðhorf kvenna til sársauka í fæðingu, en rannsóknin er partur af stærri rannsókn sem kannar upplifun kvenna af sársauka og meðferð við sársauka í fæðingu.
Rannsóknaraðferðin er eigindleg þar sem Vancouver skólaaðferðin í fyrirbærafræði var notuð við öflun og greiningu gagna. Rannsóknin var framkvæmd á Akureyri þar sem tekin voru fjórtán djúpviðtöl við fjórtán konur á fyrstu fjórum dögum eftir fæðingu barns þeirra um viðhorf þeirra til sársauka í fæðingu.
Helstu niðurstöður eru þær að konur skoða viðhorf sín til sársauka fyrir fæðinguna, þær meta eigin styrkleika til að takast á við sársaukann og gera sér grein fyrir því að viðhorf þeirra skipta máli þegar í fæðinguna er komið. Meðan á fæðingunni stendur minna þær sjálfar sig á að fæðingunni ljúki og að þær fái barn í staðinn fyrir allan sársaukann en það endurspeglar ákveðið viðhorf þeirra til sársaukans. Síðan kemur fram í niðurstöðum að viðhorf þeirra til sársauka almennt breytist gjarnan eftir fæðinguna og að þær fái jafnvel aukið sjálfstraust til þess að takast á við erfið og krefjandi verkefni í framtíðinni.



