Háskólinn á Akureyri

Málstofa í heilbrigđisvísindum Fimmtudaginn 16. febrúar mun Kristín Sóley Sigursveinsdóttir

Málstofa í heilbrigđisvísindum

Kristín Sóley Sigursveinsdóttir aðjúnktFimmtudaginn 16. febrúar mun Kristín Sóley Sigursveinsdóttir iðjuþjálfi, stjórnsýslufræðingur og aðjúnkt við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri flytja erindi á málstofu undir yfirskriftinni: Opinber stýring öldrunarþjónustu – er þörf á nýrri nálgun? Málstofan verður haldin kl. 12.10-12.55 í stofu M102 á Sólborg við Norðurslóð. Málstofan er öllum opin.

Öldrunarþjónusta á Íslandi er í höndum margra aðila: ríkis, sveitarfélaga, sjálfseignarstofnana og fyrirtækja. Um er að ræða þjónustunet sem þróast hefur smám saman á áratugum. Ábyrgð á framkvæmd lögbundinnar þjónustu er að hluta hjá ríki og að hluta hjá sveitarfélögum. Stefnt er að flutningi á fleiri þáttum þjónustunnar frá ríki til sveitarfélaga á næstu árum.

Kynnt verður rannsókn á opinberri stýringu öldrunarþjónustunnar. Skoðaðar voru þær aðferðir sem ríkisvaldið beitir við stýringu, skipulag og samhæfingu öldrunarþjónustunnar frá stefnumörkun til framkvæmdar og hvort þær aðferðir hafa skilað tilætluðum árangri. Jafnframt var kannað hvort vænta mætti betri árangurs í öldrunarþjónustu með breyttum áherslum í samhæfingu og stýringu þjónustuúrræða. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að þörf sé endurskoðunar á skipulagi og framkvæmd þjónustunnar. Við þá endurskoðun væri gagnlegt að horfa til umboðskenninga og þekkingar á opinberum netum. Þörf er á að skýra hlutverka-, ábyrgðar- og verkaskiptingu og setja viðmið um gæði þjónustunnar og rétt notenda. Stefnumörkun þarf að fylgja vandaðri útfærsla og eftirfylgd en hingað til og bæta þarf eftirlit með þjónustunni. Gagnlegt gæti verið að horfa á öldrunarþjónustuna sem flókið opinbert net þar sem skipulag þarf að vera skýrt og samráð víðtækt.

Hægt er að hlusta á upptöku af fyrirlestrinum á með því að smella á tengilinn mms://media.unak.is/h_120216



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Barbara Helgadóttir

„Háskólinn á Akureyri er mjög góđur skóli. Ég er sérstaklega ánćgđ međ símatiđ sem er í sálfrćđinni.“

Barbara Helgadóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf