Háskólinn á Akureyri

Málstofa í heilbrigđisvísindum Fimmtudaginn 1. desember mun Dr. Árún K. Sigurðardóttir prófessor og

Málstofa í heilbrigđisvísindum

Árún K. Sigurðardóttir prófessorFimmtudaginn 1. desember mun Dr. Árún K. Sigurðardóttir prófessor og forseti heilbrigðisvísindasviðs halda erindi í málstofu heilbrigðisvísindasviðs undir yfirskriftinni: Lyfjanotkun eldri Íslendinga sem búa heima – Lýðgrunduð rannsókn í dreifbýli og þéttbýli. Málstofan verður haldin kl. 12.10-12.55 í stofu M101 að Sólborg við Norðurslóð og er öllum opin.

Tilgangur málstofunnar er að lýsa lyfjanotkun eldri Íslendinga sem búa heima með því að rýna í fjölda lyfja, fjöllyfjanotkun (> 5 lyf) og notkun út frá ATC flokkunarkerfi lyfja. Einnig að rannsaka tengsl lyfjanotkunar viðfjölbreytta einstaklings-, umhverfis- og lífsstílsþætti með áherslu á búsetu í dreifbýli eða þéttbýli. Rannsóknin var lýðgrunduð, þversniðsrannsókn. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtöku úr þjóðskrá fyrir eitt þéttbýlissvæði (n=118) og tvö dreifbýlissvæði (n=68). Skilyrði fyrir þátttöku: 1) ≥ 65 ára, 2) búa heima, 3) fær um að tjá sig munnlega. Upplýsingar um lyf voru skráðar eftir lyfjakorti og viðtölum. Spurningalisti og fimm stöðluð matstæki voru notuð til að meta mögulega áhrifaþætti lyfjanotkunar. Niðurstöður sýndu að þátttakendur tóku að meðaltali 3,9 lyf, þéttbýlisbúar tóku að meðaltali 4,0 en meðaltal dreifbýlisbúa var 3,8 lyf. Miðað við dreifbýlisbúa höfðu þéttbýlisbúar færri sjúkdómsgreiningar, meiri líkamlega færni, minni verki og færri þunglyndiseinkenni.

Í málstofunni verður farið í algengi lyfjanotkunar út frá hverjum ATC flokki og hugsanlegir áhrifaþættir lyfjanotkunar greindir. En út frá rannsókninni má álykta að óútskýrður svæðisbundinn munur sé til staðar á lyfjanotkun eldri Íslendinga.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Guđrún S. Magnúsdóttir

„Öll ákvarđanataka í HA er vel kynnt nemendum og tekin međ hagsmuni ţeirra ađ leiđarljósi.“

Jóhanna Guđrún S. Magnúsdóttir nemandi í lögfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf