Fræðsla til sjúklinga er álitin mikilvæg og hefur sannað gildi sitt til að draga úr kvíða, stytta sjúkrahúslegur og auka sjálfsumönnun. Samt er það svo að einungis lítill hluti fræðslunnar er byggður á gagnreyndri þekkingu. Hér verður greint frá alþjóðlegu verkefni sem sjö lönd í Evrópu taka þátt í. Tilgangur verkefnisins er að renna betri stoðum undir hvað felst í eflandi sjúklingafræðslu og að greina og skýra mismun í sjúklingafræðslu eftir löndum. Verkefnið hófst með prófun og þróun mælitækja í Finnlandi 1998 og er verkefninu stýrt þaðan. Þátttakendur eru sjúklingar sem gangast undir skipulagðar liðskiptaaðgerðir og aðstandendur þeirra, einnig hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar sem starfa við umönnun þessara sjúklinga. Rannsóknin er framvirk og eru tímapunktar mælinga þrír. Ætlunin er að kynna hugmyndafræði og uppbyggingu rannsóknarinnar, mælitækin og hvernig gagnasöfnum fer fram.
ATH! Hægt er að hlusta á málstofuna hér: mms://media.unak.is/h_100121



