Háskólinn á Akureyri

Málstofa í heilbrigđisvísindum Fimmtudaginn 18. mars kl. 12:10 mun Dr. Hermann Óskarsson, dósent við

Málstofa í heilbrigđisvísindum

Hermann ÓskarssonFimmtudaginn 18. mars kl. 12:10 mun Dr. Hermann Óskarsson, dósent við heilbrigðisvísindasvið HA flytja erindið Hvers vegna er heilbrigði kynjanna mismunandi? á málstofu í heilbrigðisvísindum.

Hvers vegna deyja karlmenn yngri en konur og hvers vegna þjást konur meira af sjúkdómum en karlar? Í erindinu verður rætt um félagslegar ástæður mismunandi heilbrigði kynjanna með áherslu á þýðingu kyngervis (gender), einkum ímyndir karlmennskunnar, og reynt að varpa ljósi á helstu orsakir heilsufarslegs ójafnaðar karla og kvenna. Í þessu sambandi er talað um félagslega dreifingu heilbrigði (social distribution of health) og átt við að heilsa og heilbrigði dreifist með ólíkum hætti á þjóðfélagshópa fyrir tilstilli félagslegra þátta. Þannig sýna rannsóknir að dánar- og sjúkdómstíðni kynjanna er t.d. mismunandi eftir því hvaða þjóðfélagshópar eiga í hlut. Þessi heilbrigðismunur á sér flóknar orsakir og styðjast þarf við ólíka túlkunarramma samtímis til skýringar á honum.

Málstofan verður haldin kl. 12:10-12:55 í stofu L101 að Sólborg við Norðurslóð. Allir velkomnir!

Hægt er að hlusta á upptöku frá málstofunni hér: mms://media.unak.is/h_100318



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Markús Jóhannesson

„Sjávarútvegsfrćđin er áhugavert og hagnýtt nám sem opnar ýmsa atvinnumöguleika, ekki síst á alţjóđlegum vettvangi. “

Markús Jóhannesson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf