Málstofa í viðskiptafræði verður haldin fimmtudaginn 8. desember. Þar mun Dr. Gestur Hovgaard lektor við Sögu- og samfélagsdeild Fróðskaparseturs Færeyja flytja erindi undir yfirskriftinni: Faroe Islands – economic challenges and vulnerabilities. Málstofan verður í stofu M101 milli kl. 12.10-12.55.
Gestur Hovgaard mun ræða stöðu Færeyja sem smáríkis – efnahagslegar áskoranir og veikleika.
Gestur Hovgaard er lektor við Sögu- og samfélagsdeild Fróðskaparseturs Færeyja. Hann lauk doktorsprófi í félagsfræði frá
Háskólanum í Roskilde í Danmörku og starfaði þar sem kennari um skeið. Helstu rannsóknasvið Gests hafa verið nýsköpun og
svæðaþróun. Um árabil var hann framkvæmdastjóri Rannsóknaseturs byggðamála í Færeyjum. Þá hefur hann verið
stjórnarformaður fyrirtækisins Atlantic Biotechnology.



