Föstudaginn 29. janúar fjallar Helgi Gestsson, lektor við HA um leiðtoganámskeið í Belize City sem
nú er í undirbúningi.
Málstofan fer fram í stofu R312 á Borgum við Norðurslóð kl. 12.10 – 12.55, allir velkomnir.
Þessa dagana fer fram undirbúningur þriggja sérfræðinga HA að fimm daga leiðtoganámskeiði sem halda á fyrir yfirstjórnendur sjávarútvegsstofnana innan samstarfsnets „The Caribbean Regional Fisheries Mechanism“ (CRFM) á Karabísku eyjunum í lok aprílmánaðar á þessu ári.
Verkefnið hefur verið í undirbúningi hjá Sjávarútvegsskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-FTP) og CRFM í u.þ.b. tvö ár. Á fundi á Barbados í desember 2008 var unnin þarfagreining og fjárhagsáætlun að verkefninu og síðan hafa tveir vikulangir undirbúningsfundir verið haldnir; á Akureyri og í Belize City.
Ögmundur Knútsson, lektor og stjórnarmaður í UNU-FTP, Helgi Gestsson, lektor við HA og aðalkennari UNU-FTP í stjórnun og rekstrarfræðum, og Ársæll Már Arnarsson, sálfræðingur og dósent við HA hafa hannað og undirbúið námskeiðið í samvinnu við þrjá aðila frá CRFM, Háskóla vestur-Indía (UWI) og Háskólanum í Belize (UB). Nú fer fram aðlögun námsefnis og raunverkefnistenging við aðstæður heimamanna í samvinnu við væntanlega fyrirlesara frá UB á námskeiðinu í apríl.
Á málstofunni verður greint frá þeim fræðilegu og kennslufræðilegu forsendum sem leiðtoganámskeiðið byggist á og sýnt fram á hvernig það fellur að námskeiðshaldi UNU-FTP um stjórnun og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja hjá þjóðum með vanþróaðan sjávarútveg.
Frá upphafi stofnunar Sjávarútvegsskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-FTP) á Íslandi árið 1998 hafa starfsmenn Háskólans á Akureyri (HA) starfað þar að kennslu, leiðbeiningu verkefna og gerð sérhæfðs námsefnis. Eitt sérnámið er stjórnun og markaðssetning sjávarútvegsfyrirtækja sem HA hefur frá upphafi séð um fyrir UNU-FTP. Starfsmenn HA hafa fyrir UNU-FTP m.a. staðið að undirbúningi og stýrt sérstökum verkefnum fyrir stjórnendur sjávarútvegsstofnana í löndum þar sem sjávarútvegur er vanþróaður, nú síðast verkefni um stefnubundna verkefnisstjórnun (PCM) árið 2008 í samstarfi við stofnanir sjávarútvegsráðuneytis Sri Lanka með styrk frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands.



