Háskólinn á Akureyri

Málţing: Stjórnarskrá í mótun - Hvernig lítur hún út? Þeir sem misstu af málþinginu sem fór fram þann 1. desember sl.

Málţing: Stjórnarskrá í mótun - Hvernig lítur hún út?

Málþing um stjórnarskrá og stjórnlagaráð 1. desember

Þeir sem misstu af málþinginu sem fór fram þann 1. desember sl. geta hlustað á upptöku af þinginu hér.

Þann 1. desember 2011 fer fram málþing í Háskólanum á Akureyri og ber það yfirskriftina: Stjórnarskrá í mótun - Hvernig lítur hún út? Málþingið hefst kl. 13:30 og stendur til kl. 16:00 í stofu M102, Sólborg. Frummælendur koma frá fjóru stóru háskólunum hér á landi auk þess sem formaður stjórnlagaráðs mun flytja erindi. Gefinn verður góður tími fyrir umræður í lokinn.

Frummælendur og heiti erinda:

Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs og forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ: Stjórnlagaráð og endurskoðun stjórnarskrá lýðveldisins.

Jón Ólafsson, prófessor við Bifröst: Lýðræðishugtakið í stjórnarskrárfrumvarpinu: Horfið frá frjálslyndi?

Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við HR: Þróun mannréttinda í tillögum stjórnlagaráðs.

Ágúst Þór Árnason, aðjúnkt við HA: Þjóð, þing og stjórnarskrá lýðveldisins.

Björg Thorarensen prófessor við Hí: Hlutverk forseta Íslands í tillögum stjórnlagaráðs.

Fundarstjóri verður Guðmundur Heiðar Frímannsson prófessor við Háskólann á Akureyri.

Ath. að hægt verður að hlusta á málþingið í beinni útsendingu á vef háskólans og upptaka verður aðgengileg að málþingi loknu.
Smellið hér til að  hlusta á málþingið. (Tengill verður virkur um kl. 13.15)

Að málþingi loknu hefst hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna, sjá nánar hér.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf