Þriðjudaginn 25. maí, stofu L103 á Sólborg kl. 12.10- 12.55 flytur Ólöf Ragna Sigurgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur og meistaranemi í heilbrigðisvísindum fyrirlestur um niðurstöður meistararannsóknar sinnar: Jákvæð og neikvæð reynsla hjúkrunarfræðinga af því að sinna tilfinningalegum þörfum skjólstæðinga sinna á lyflækningasviði.
Leiðbeinandi Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor H.A. og ráðgjafi Margrét Hrönn Svavarsdóttir, lektor H.A.
Allir velkomnir.



