Föstudaginn 28. maí, stofu K201 á Sólborg kl. 11.00 – 11.45 flytur Sara Stefánsdóttir, aðjunkt
í iðjuþjálfun og meistaranemi í heilbrigðisvísindum fyrirlestur um niðurstöður meistararannsóknar sinnar:
Reynsla foreldra og útkoma íhlutunar: Fjölskyldumiðuð þjónusta á Æfingastöðinni.
Tilgangur rannsóknarinnar var í fyrsta lagi að afla þekkingar á reynslu og sýn foreldra á þjónustu sem Æfingastöðin veitir. Í öðru lagi að kanna hvort íhlutun sem veitt er af þjálfurum Æfingastöðvarinnar skili fjölskyldum þeirri útkomu sem stefnt var að. Rannsóknin byggði á raðbundnu sniði blandaðs rannsóknarsniðs. Megindlegum gögnum var safnað með spurningalistanum Mat foreldra á þjónustu og matstækinu Goal attainment scaling, og var gagnasöfnun lokið með þremur eigindlegum viðtölum til að dýpka niðurstöður fyrsta og annars hluta rannsóknarinnar. Alls tóku 236 foreldrar þátt í spurningakönnuninni og 14 foreldrar í útkomumælingu.
Niðurstöður gefa til kynna að þjónusta Æfingastöðvarinnar sé fjölskyldumiðuð að frekar miklu leyti ef frá er talin upplýsingagjöf til fjölskyldnanna. Í ljós kom að aldur barns, færni þess og skerðing hafa áhrif á mat foreldra á þjónustu stöðvarinnar. Flest börnin náðu markmiðum sínum og skilaði íhlutun þjálfara, í heild, þeim árangri sem stefnt var að. Sérstök ánægja var með þjálfarana sjálfa og aðstöðu stöðvarinnar. Helst ríkti óánægja með staðsetningu þjónustunnar, skráningu og upplýsingagjöf.
Til að efla samstarf við fjölskylduna er mikilvægt að fjölskyldan þekki til fjölskyldumiðaðrar þjónustu og hvað einkennir hana. Móta þarf skýra stefnu varðandi upplýsingagjöf til fjölskyldunnar, sér í lagi hvað varðar stuðning. Til að auka þátttöku barnsins í samfélaginu er áríðandi að horfa til félagslegra þátta og umhverfis ekki síður en til líkamsstarfsemi og því verður að leita leiða til að veita þjónustuna í nærumhverfi fjölskyldunnar.
Leiðbeinandi Dr. Snæfríður Þóra Egilson, prófessor í iðjuþjálfun HA og ráðgjafi Kjartan Ólafsson, lektor HA



