Helena Dam á Neystabø, menntamálaráðherra Færeyja heimsótti Háskólann á
Akureyri ásamt fylgdarliði sínu þriðjudaginn 7. júní. Helena Dam, Leivur Harryson, aðalstjóri í
menntamálaráðuneytinu, Martin Næs, deildarstjóri og Kristianna Sjóvará, fulltrúi hittu m.a. Stefán B. Sigurðsson rektor HA að
máli og snæddu hádegisverð með honum og fræddust um framboð og skipulag menntunnar við háskólann. Sérstaklega voru gestirnir
áhugasamir um fjarnámið og sjávarútvegsfræðina.
Á myndinni frá vinstri talið má sjá: Kristiönnu Sjóvará, fulltrúa, Leiv Harryson aðalstjóra í menntamálaráðuneytinu, Helenu Dam menntamálaráðherra, Stefán B. Sigurðsson rektor og Martin Næs deildarstjóra.



