Háskólinn á Akureyri

Miđstöđ skólaţróunar: Rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi Fimmtudaginn 16. febrúar mun Sólveig Zophoníasdóttir

Miđstöđ skólaţróunar: Rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi

Fimmtudaginn 16. febrúar mun Sólveig Zophoníasdóttir sérfræðingur hjá miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri flytja erindi undir yfirskriftinni: Rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi. Fræðslufundurinn verður haldinn að Sólborg við Norðurslóð kl. 15:20-16:20 í stofu L202.

Á fræðslufundinum segir Sólveig Zophoníasdóttir frá meistaraprófsverkefni sínu sem fólst í gerð námskrár sem kallar eftir rödd nemenda og hlutdeild í skólastarfi. Leitað var svara við rannsóknarspurningunni: Hvað einkennir námskrá sem laðar fram rödd nemenda? Verkefnið hvílir á grunni rannsókna, fræða og hugmynda um rödd nemenda og er ætlað að hvetja einstaklinga innan námssamfélagsins, ekki síst börn og ungmenni, til virkrar þátttöku í öllu skólastarfi. Verkefnið hefur siðferðilega skírskotun og á rætur sínar að rekja til jafnréttis-, mannréttinda- og lýðræðissjónarmiða og þess skilnings að menntun verði haldbærari og farsælli ef rödd nemenda og nærvera er virk. Vaxandi umræða er um gildi þess fyrir samfélagið að einstaklingar eigi kost á að láta sjónarmið sín í ljós varðandi málefni sem þá snerta. Þessi hugsun hefur einnig færst inn í skólanna með aukinni lýðræðisvitund og breyttum skilningi á tilveru barna og ungmenna. Fyrir virkri aðkomu nemenda að málum sem snerta hagsmuni þeirra eru lagaleg, siðferðileg og hagnýt rök.

Í erindinu er sjónum beint að kjarna skólastarfs, það að menntast, og með hvaða hætti rödd nemenda getur lagt námi og kennslu lið, aukið gildi menntunar fyrir einstakling og samfélag.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hákon Örn Hafţórsson

„HA veitir nemendum góđa ađstöđu til náms og mér líđur vel í bćđi áhugaverđu og krefjandi námi sem kennarafrćđin er.“

Hákon Örn Hafţórsson kennaranemi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf