Í málstofu Miðstöðvar skólaþróunar fimmtudaginn
19. janúar mun Hrund Hlöðversdóttir stjórnandi leikskóladeildar Hrafnagilsskóla flytja erindið: Það kemur miklu meira á vagninn:
Lykilþættir breytingarstarfs. Málstofan verður kl. 15.20-16.20 í stofu L202 á Sólborg.
Í málstofunni verða kynntar niðurstöður mastersrannsóknar um breytingastarf í skólum og skólaþróun. Rannsóknin er eigindleg rannsókn þar sem skoðaðir voru tveir grunnskólar og einn framhaldsskóli sem eiga það sameiginlegt að hafa tekist að koma á breytingum á starfsháttum sem taka til alls skólasamfélagsins. Í rannsókninni var leitað eftir lykilþáttum í breytingastarfinu sem styðja það að breytingarnar takist og að skólaþróun verði.
Í málstofunni verða niðurstöður kynntar og farið yfir hvað fræðimenn segja um breytingastarf og breytingastjórnun.



