Háskólinn á Akureyri

Myndir frá GoRed deginum á Akureyri Sunnudaginn 21. febrúar var efnt til opinnar dagskrár á Hótel KEA, Akureyri í

Myndir frá GoRed deginum á Akureyri

GoRed á AkureyriSunnudaginn 21. febrúar var efnt til opinnar dagskrár á Hótel KEA, Akureyri í tilefni af GoREd deginum sem er hluti af alheimsátaki til vakningar um hjarta- og æðasjúkdóma kvenna. Einnig var í boði fjölbreytt hreyfidagsskrá víða um bæinn í boði heilsurækta bæjarins og skíðafélags Akureyrar. Myndir frá deginum á Akureyri má sjá í myndasafni hér.

GoRed dagurinn þótti mjög vel heppnaður.  Um 150 rauðklæddar konur og karlar mættu á Hótel KEA og hlýddu á ýmis fræðsluerindi flutt m.a. af Gunnari Þór hjartasérfræðingi og Jóhönnu Kristjánsdóttur hjúkrunarfræðingi. Kvennakór Akureyrar söng og Leikfélagið á Akureyri var með atriði úr Rocky horror. Þrátt fyrir alvarlegt málefni sem mikilvægt er að vekja stöðuga athygli á einkenndist dagurinn af léttu og notalegu andrúmslofti og voru gestir leystir út með gjöfum í dagskrárlok.  

Tilgangur GoRed dagsins er að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga má úr líkum á sjúkdómunum. Verndari átaksins hér á landi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra. Þess ber að geta að þennan dag var einnig glæsileg dagsskrá haldin í Háskóla Íslands í Reykjavík.

GoRed dagurinn á Akureyri var samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri, Hjartaverndar, Hjarta og lungnastöðvarinnar Bjargi, Hjartaverndar Norðurlands,  Hjartaheillar og Hjartasjúkdómafélagsins.

 

 



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Ţverfagleiki náms viđ HA gerir manni kleift ađ sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir ţví ađ hafa valiđ HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf