Háskólasjóður KEA óskar eftir umsóknum um styrki til meistaranáms við Háskólann
á Akureyri. Nemendur geta sótt um styrk fyrir allt að kr. 500 þús. úr sjóðnum. Við meðferð umsókna verður tekið
mið af árangri nemenda úr grunnnámi, fyrirætlana um meistaranám og/eða núverandi stöðu í meistaranámi og gæðum
umsókna.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, lýsing á meistaraverkefni, staðfesting á skólavist við Háskólann á Akureyri, meðmæli frá tveimur aðilum og annað sem umsækjandi telur að geti komið að gagni við mat á umsókninni.
Umsóknir skulu sendar til:
Stjórnsýslu rannsókna
bt/Ólínu Freysteinsdóttur
Borgum v/ Norðurslóð
600 Akureyri.
Markmið KEA með styrkveitingunni er að hvetja framúrskarandi námsmenn til árangurs og auðvelda þeim þannig að helga sig náminu.
Nánari upplýsingar gefur Ólína í síma 460-8915 eða á netfangið olina@unak.is.
Umsóknarfrestur er til 4. júní.



